Ferill 209. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1097 – 209. mál.
Frumvarp til laga
um breyting á lögum nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða.
(Eftir 2. umr., 31. mars.)
1. gr.
Við lögin bætist ný grein er verður 11. gr. a og orðast svo:Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. 7. gr. og 11. gr. má samanlögð aflahlutdeild fiskiskipa í eigu einstakra aðila, einstaklinga eða lögaðila, eða í eigu tengdra aðila aldrei nema hærra hlutfalli af heildaraflahlutdeild eftirtalinna tegunda en hér segir:
Tegund Hámarks-
aflahlutdeild
Þorskur 10%
Ýsa 10%
Ufsi 20%
Karfi 20%
Grálúða 20%
Síld 20%
Loðna 20%
Úthafsrækja 20%
Nemi heildarverðmæti aflamarks annarra tegunda en að ofan greinir, sem sæta ákvörðun um leyfðan heildarafla samkvæmt lögum þessum, við upphaf fiskveiðiárs hærra hlutfalli en 2% af heildarverðmæti aflamarks allra tegunda, sem sæta ákvörðun um leyfðan heildarafla, má samanlögð aflahlutdeild fiskiskipa í eigu einstakra aðila, einstaklinga eða lögaðila, eða í eigu tengdra aðila aldrei nema hærra hlutfalli af heildaraflahlutdeild viðkomandi tegunda en 20%. Skal ráðherra við upphaf fiskveiðiárs tilgreina í reglugerð þær tegundir sem um er að ræða. Við mat á heildarverðmæti aflamarks skal annars vegar miða við hlutfallslegt verð
Þá má samanlögð aflahlutdeild fiskiskipa í eigu einstakra aðila, einstaklinga eða lögaðila, eða í eigu tengdra aðila ekki nema meira en 8% af heildarverðmæti aflahlutdeildar allra teg
Til aflahlutdeildar fiskiskipa í eigu einstakra aðila skv. 1., 2. og 5. mgr. telst einnig afla
Prentað upp.
Tengdir aðilar teljast:
1. Aðilar, þar sem annar aðilinn, einstaklingur eða lögaðili, á beint eða óbeint meiri hluta hlutafjár eða stofnfjár í hinum aðilanum eða fer með meiri hluta atkvæðisréttar. Fyrr
2. Aðilar, þar sem annar aðilinn, einstaklingur eða lögaðili, hefur með öðrum hætti en greinir í 1. tölul. raunveruleg yfirráð yfir hinum. Fyrrnefndi aðilinn telst móðurfyrirtæki en hinn síðarnefndi dótturfyrirtæki.
3. Lögaðilar, þar sem svo háttar til að sami aðili eða sömu aðilar, einstaklingar eða lögaðilar, eða tengdir aðilar skv. 1. eða 2. tölul., eiga meiri hluta hlutafjár, stofnfjár eða atkvæðisréttar í báðum eða öllum lögaðilunum enda nemi eignarhlutur hvers þeirra um sig a.m.k. 10% af hlutafé, stofnfé eða atkvæðafjölda í viðkomandi lögaðilum. Sama á við ef aðili eða aðilar, einstaklingar eða lögaðilar eða tengdir aðilar skv. 1. eða 2. tölul., sem eiga meiri hluta hlutafjár, stofnfjár eða atkvæðisréttar í lögaðila og hver um sig á a.m.k. 10% hlutafjár, stofnfjár eða atkvæðisréttar í lögaðilanum, eiga ásamt viðkomandi lögaðila meiri hluta hlutafjár, stofnfjár eða atkvæðisréttar í öðrum lögaðila. Til eignar
Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. má samanlögð aflahlutdeild fiskiskipa í eigu einstakra lögaðila, eða tengdra aðila, nema allt að 12% af heildarverðmæti aflahlutdeildar allra tegunda skv. 2. mgr., eigi enginn aðili, einstaklingur eða lögaðili eða tengdir aðilar, meira en 20% af hlutafé, stofnfé eða atkvæðisrétti í viðkomandi lögaðila. Engar hömlur mega vera á við
2. gr.
Við lögin bætist ný grein er verður 11. gr. b og orðast svo:Aðila ber, þegar fyrirsjáanlegt er að aflahlutdeild fiskiskipa aðila fari umfram þau mörk sem sett eru í 1., 2. eða 5. mgr. 11. gr. a, að tilkynna Fiskistofu flutning aflahlutdeilda, sam
Fiskistofa skal meta þær upplýsingar sem aðili hefur látið í té og innan hæfilegs frests til
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildiÁkvæði til bráðabirgða.
I.
Sé aflahlutdeild fiskiskipa í eigu einstakra aðila, einstaklinga eða lögaðila, eða í eigu tengdra aðila við gildistöku laga þessara yfir þeim mörkum sem sett eru í 1., 2. eða 5. mgr. 1. gr. skal viðkomandi aðili þegar í stað senda Fiskistofu tilkynningu í samræmi við 1. mgr. 2. gr. Fiskistofa skal í samræmi við 2. mgr. 2. gr. tilkynna aðila hver umframaflahlutdeild hans er og gildir 2. mgr. 2. gr. um frest aðila til að ráðstafa umframaflahlutdeildinni og áhrif þess að umframaflahlutdeildinni er ekki ráðstafað innan tilskilins frests.
II.
Sjávarútvegsráðherra skal að liðnum fimm árum frá gildistöku laga þessara leggja fyrir Alþingi skýrslu þar sem gerð er grein fyrir áhrifum þeirra á íslenskan sjávarútveg.